tag:blogger.com,1999:blog-14901384.post113294741942131791..comments2023-07-10T11:52:46.702+00:00Comments on Hugsaðu: Frumrauninkatrín annahttp://www.blogger.com/profile/04943276990246033567noreply@blogger.comBlogger2125tag:blogger.com,1999:blog-14901384.post-1133023215905978752005-11-26T16:40:00.000+00:002005-11-26T16:40:00.000+00:00Held að í þessu tilfelli hafi verið betra að lesa ...Held að í þessu tilfelli hafi verið betra að lesa bara pistilinn... ;)

En varðandi ofbeldið - menn sem beita ofbeldi geta verið ofur venjulegir menn - það sést ekki á þeim að þeir séu ofbeldismenn og geta verið afskaplega indælir svona að öllu jöfnu. Hinir auðvitað líka til. En það hefur verið sýnt fram á tengsl á milli karlmennskuhugmynda og ofbeldis - þ.e. það er eitthvað í menningunni sem gerir það að verkum að ofbeldi líðst. Sumar karlmennskuímyndir hampa ofbeldi og kvenfyrirlitningu - gott dæmi t.d. þeir tölvuleikir sem hafa verið í umræðunni núna, rappararnir Snoop og 50 cent, klámvæðingin - klámbylgjan og þess háttar hlutir. Til að stöðva ofbeldið þurfum við líka að hafa fyrirmyndir sem byggja á gagnkvæmri virðingu milli kyna - og þar eigum við mjög langt í land. Því miður.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-14901384.post-1132965964186952942005-11-26T00:46:00.000+00:002005-11-26T00:46:00.000+00:00Mér finnst það eiginlega vera synd að konur skuli ...Mér finnst það eiginlega vera synd að konur skuli vera að mótmæla þessu. Það eru auðvitað karlmenn sem ættu að heya baráttu gegn kynbundnu ofbeldi í garð kvenna. Karlmenn svona yfir höfuð taka mjög fljótt á lífsleiðinni afstöðu gegn ofbeldi í garð kvenna. Það held ég að sé ekki rétt að tengja ofbeldi í garð kvenna við karlmennskuýmindina. Það er viðurkennt að það sé ræfilsháttur og til minnkunar manns ef hann beitir konu ofbeldi.

Ofbeldi karlmanna gegn konum má held ég að mestu leyti rekja til geðrænna vandamála eða er það tengt áfengi eða eiturlyfjum. Ef sá hópur væri fjarlægður úr breytunni held ég að hlutfall kvenna og karla sem beyta maka ofbeldi væri mjög áþekkt (veit samt ekkert um það). En það er engin afsökun fyrir svoleiðis hegðun, og gerir vandamálið vissulega ekkert minna.

En leiðinlegt að hafa misst af þér í TV þarf að fara að fá mér þessa sjónvarpsstöð.Anonymousnoreply@blogger.com