miðvikudagur, febrúar 13, 2008

Besti frambjóðandinn!

Ég held með Hillary - ekki bara af því að það er tímabært að kona verði forseti Bandaríkjanna heldur einnig vegna þess að ég og hún eigum flest sameiginlegt um málefnin! Krossa svo fingur að McCain vinni ekki... við erum 7% sammála og mér sýnist á þessu prófi að það sé aðeins eitt sem þessi 7% standa fyrir. Við erum sammála um að ekki eigi að binda í stjórnarskrá Bandaríkjanna að hjónaband eigi eingöngu að vera á milli karls og konu!

Hillary Clinton
Score: 66


-- Take the Quiz! --



Clinton: 66
Obama: 59
Gravel: 55
Paul: 20
Romney: 12
McCain: 7
Huckabee: 2

2 ummæli:

Valur sagði...

Ég er líka að vona að Hillary hafi þetta. En ætli Hillary sé ekki að tapa dálítið á því að hafa ekki frá byrjun verið á móti Íraksstríðinu? Og þá ólíkt honum Óbama...

katrín anna sagði...

Jú, það var ansi óheppilegt að hún skyldi „lenda“ í því...!